28. maí 2025

Auður mætt á húsnæðislánamarkað með bestu kjörin

Auður, fjármálaþjónusta Kviku fyrir sparnaðarreikninga, hefur nú innreið sína á húsnæðislánamarkað og opnar í dag nýja þjónustu. Auður býður upp á húsnæðislán á bestu kjörum sem bjóðast á breytilegum óverðtryggðum vöxtum. Áhersla verður lögð á einfaldleika og gagnsæi, hagstæð kjör og að styðja við eignamyndun fasteignaeigenda.

8,5% breytilegir vextir

Frá og með deginum í dag mun Auður bjóða upp á hagstæð óverðtryggð húsnæðislán fyrir þau sem eiga meira en 45% í sinni eign. Vextir verða breytilegir, 8,5% til að byrja með, og eru það lægstu vextir sambærilegra lána á markaðnum í dag. Mikil áhersla er lögð á gagnsæi við ákvörðun vaxta en vextir munu fylgja þróun stýrivaxta Seðlabanka Íslands að viðbættu föstu vaxtaálagi til þriggja ára í senn.

Tvær leiðir í boði og ekkert uppgreiðslugjald

Boðið verður upp á tvenns konar óverðtryggð húsnæðislán. Annars vegar lán sem henta þeim sem vilja hraðari eignamyndun og hins vegar þeim sem kjósa tímabundið léttari greiðslubyrði. Hægt verður að skipta um leið, til dæmis ef aðstæður fólks breytast eða vextir taka að lækka. Á vef Auðar verður hægt að fylgjast vel með þróun eignamyndunar í húsnæðinu eftir því sem lánið er greitt niður. Ekkert uppgreiðslugjald verður af lánum Auðar.

Auður heldur áfram að auka samkeppni fyrir neytendur

Ármann Þorvaldsson, forstjóri Kviku:

„Auður kom inn á markaðinn á sínum tíma með hæstu sparnaðarvexti sem voru í boði fyrir almenning. Nú fer Auður inn á húsnæðislánamarkað með lægstu húsnæðislánavexti sem eru í boði meðal sambærilegra lána. Velgengni og árangur Auðar síðustu ára hefur meðal annars leitt af sér að við getum nú veitt húsnæðislán á hagstæðum kjörum. Við viljum hjálpa fólki að eignast meira í húsnæðinu sínu og bjóðum því einungis upp á óverðtryggð lán með ákveðnum sveigjanleika. Þetta er fyrsta tegund lána sem Auður mun bjóða og við bindum vonir við að fólk í fasteigna- eða endurfjármögnunarhugleiðingum taki þessari nýjung vel.“

Auður hefur aukið vaxtatekjur almennings af sparnaði um tugi milljarða

Frá upphafi hefur Auður lagt áherslu á að veita einfalda fjármálaþjónustu einungis á netinu og með litla yfirbyggingu en með því er kostnaði haldið í lágmarki og svigrúm nýtt til að bjóða viðskiptavinum betri kjör. Viðskiptavinir með sparnaðarreikninga hjá Auði eru nú vel yfir 50.000 og staða innlána rauf 100 milljarða múrinn á fimm ára afmæli Auðar í fyrra. Það hefur munað um áhrif Auðar á samkeppni á íslenskum innlánamarkaði en munurinn á innlánavöxtum og stýrivöxtum Seðlabankans minnkaði verulega eftir að Kvika hóf að bjóða uppá þjónustu Auðar. Uppsafnaður ábati almennings af hærri innlánsvöxtum vegna aukinnar samkeppni hefur verið áætlaður um 30 milljarðar króna frá stofnun Auðar.

Auður húsnæðislán

Til baka