25. september 2024

AUÐUR býður nýja fyrirtækjareikninga með hæstu vöxtum

Auður, fjármálaþjónusta Kviku fyrir sparnaðarreikninga, haslar sér nú völl á fyrirtækjamarkaði og opnar í dag nýja þjónustu, fyrirtækjareikninga sem bjóða hæstu vextina í samanburði við sambærilega reikninga í öðrum bönkum.

Auður hefur frá upphafi boðið einstaklingum uppá einfalda sparnaðarreikninga á netinu með hæstu mögulegu vöxtum án binditíma. Sparnaðarreikningar Auðar, sem hafa notið mikilla vinsælda, hafa hingað til einungis staðið einstaklingum til boða en nú er komið að fyrirtækjum.

8% vextir óháð innlánsupphæð

Frá og með deginum í dag býður Auður fyrirtækjum 8% vexti, óháð innlánsupphæð, á óbundnum og óverðtryggðum sparnaðarreikningum, sem eru hæstu vextir á sambærilegum reikningum sem eru í boði á markaðnum í dag fyrir fyrirtæki.

Nýir fyrirtækjareikningar og vaxtakjör Auðar standa öllum fyrirtækjum til boða óháð því hvort þau eru í öðrum viðskiptum við Kviku. Á einfaldan hátt geta forráðamenn stofnað nýjan reikning fyrir sína starfsemi á vef Auðar. Reikningarnir bera hvorki stofngjald né færslugjöld.

Ármann Þorvaldsson, forstjóri Kviku:

„Með tilkomu Auðar á sínum tíma breytti Kvika markaðnum fyrir sparnaðarreikninga einstaklinga og bauð allt að tvöfalt betri vexti en þekktust. Kvika jók þannig samkeppni á þessum markaði sem hafði áhrif á kjör innlána hjá öðrum bönkum til verulegra hagsbóta fyrir alla neytendur. Í dag eru einstaklingsviðskiptavinir Auðar orðnir rúmlega 49 þúsund talsins. Nú er komið að því að útvíkka þjónustu Auðar til fyrirtækja og bjóða þeim betri kjör á sparnaðarreikningum en aðrir bjóða. Þjónustan stendur öllum til boða og hentar ekki síst litlum og meðalstórum fyrirtækjum sem vilja fá bestu vextina á óbundnum innlánsreikningum óháð upphæð. Við höfum frá upphafi Auðar lagt áherslu á að bjóða uppá einfalda og trausta sparnaðarþjónustu með litla yfirbyggingu, sem hefur leitt af sér betri kjör fyrir viðskiptavini. Við bindum því vonir við að fyrirtæki taki þessari nýjung vel.“

Yfir 49 þúsund einstaklingar með sparnaðarreikninga Auðar

Auður er fjármálaþjónusta á netinu sem hefur frá upphafi lagt sig fram um að bjóða uppá hærri innlánsvexti en gengur og gerist fyrir þau sem vilja leggja fyrir og fá sanngjarna vexti á sitt sparifé. Viðskiptavinir Auðar meðal einstaklinga eru nú yfir 49.000 og staða innlána rauf 100 milljarða múrinn á fimm ára afmæli Auðar síðastliðið vor. Auður veitir þjónustu einungis á netinu en með því er kostnaði haldið í lágmarki og þannig skapast svigrúm til að bjóða viðskiptavinum upp á betri innlánskjör.

Aukið vaxtatekjur almennings um tugi milljarða

Það er til marks um áhrif Auðar á samkeppni á íslenskum innlánamarkaði að munurinn á innlánavöxtum og stýrivöxtum Seðlabankans hefur minnkað svo um munar eftir að Kvika hóf að bjóða uppá þjónustu Auðar og taka við innlánum á vormánuðum 2019. Uppsafnaður ábati almennings af hærri innlánsvöxtum vegna aukinnar samkeppni er áætlaður um 30 milljarðar króna frá stofnun Auðar.

Nánar um fyrirtækjareikninga Auðar

Til baka