Afkoma Kviku banka á þriðja ársfjórðungi 2026
Á stjórnarfundi þann 4. nóvember 2026 samþykktu stjórn og forstjóri árshlutauppgjör samstæðu Kviku banka hf. („Kvika“) fyrir þriðja ársfjórðung og fyrstu níu mánuði ársins 2026.
Helstu atriði í afkomu þriðja ársfjórðungs (3F 2026):
- Hagnaður af áframhaldandi starfsemi samstæðunnar fyrir skatta nam 1.754 m.kr. á 3F 2026, samanborið við 1.969 m.kr. á 3F 2025 og lækkaði um 215 m.kr. eða 10,9%.
- Hagnaður af áframhaldandi starfsemi samstæðunnar eftir skatta nam 1.342 m.kr. á 3F 2026, samanborið við 1.472 m.kr. á 3F 2025 og lækkaði um 130 m.kr. eða 8,8%.
- Hreinar vaxtatekjur námu 3.052 m.kr. á 3F 2026, samanborið við 2.953 m.kr. á 3F 2025 og hækkuðu um 99 m.kr. frá fyrra ári eða 3,4%.
- Vaxtamunur var 4,0% á 3F 2026, samanborið við 4,0% á 3F 2025.
- Hreinar þóknanatekjur námu 1.380 m.kr. á 3F 2026, samanborið við 1.571 m.kr. á 3F 2025 og lækkuðu um 191 m.kr. frá fyrra ári eða 12,2%.
- Aðrar rekstrartekjur námu 366 m.kr. á 3F 2026, samanborið við 338 m.kr. á 3F 2025 og hækkuðu um 28 m.kr. frá fyrra ári.
- Rekstrarkostnaður nam 2.807 m.kr. á 3F 2026, samanborið við 2.740 m.kr. á 3F 2025 og hækkaði um 67 m.kr. frá fyrra ári eða 2,4%.
- Arðsemi efnislegs eigin fjár (RoTE) fyrir skatta af áframhaldandi starfsemi nam 18,9% á 3F 2026, samanborið við 17,8% á 3F 2025.
- Hagnaður á hlut af áframhaldandi starfsemi nam 0,31 kr. á 3F 2026, samanborið við 0,33 kr. á 3F 2025.
Helstu atriði efnahags þann 30.09.2026:
- Innlán frá viðskiptavinum námu 200 ma.kr., samanborið við 173 ma.kr. í lok árs 2025 og jukust um 16,0% á tímabilinu.
- Útlán til viðskiptavina voru 235 ma.kr., samanborið við 208 ma.kr. í lok árs 2025 og jukust um 13,2% á tímabilinu.
- Heildareignir námu 370 ma.kr., samanborið við 343 ma.kr. í lok árs 2025.
- Eigið fé samstæðunnar var 58 ma.kr., samanborið við 69 ma.kr. í lok árs 2025.
- Eiginfjárhlutfall samstæðunnar (CAR) var 22,3%, samanborið við 26,8% í lok árs 2025. Hlutfallið tekur tillit til óendurskoðaðs hagnaðar tímabilsins en eiginfjárhlutfall samkvæmt reglum Fjármálaeftirlits Seðlabanka Íslands var 21,8% í lok september 2026.
- Heildar lausafjárþekjuhlutfall (LCR) samstæðunnar var 174%, samanborið við 404% í lok árs 2025.
- Heildareignir í stýringu námu 442 ma.kr., samanborið við 469 ma.kr. í lok árs 2025.
Helstu atriði fyrstu níu mánaða 2026:
- Hagnaður af áframhaldandi starfsemi samstæðunnar fyrir skatta nam 5.108 m.kr., samanborið við 4.695 m.kr. á sama tímabili árið 2025 og hækkaði um 413 m.kr. eða 8,8%.
- Hagnaður af áframhaldandi starfsemi samstæðunnar eftir skatta nam 3.619 milljónum króna, samanborið við 3.097 m.kr. á sama tímabili árið 2025 og hækkaði um 522 m.kr. eða 16,9%.
- Hreinar vaxtatekjur námu 9.331 milljónum króna, samanborið við 8.831 m.kr. á sama tímabili árið 2025 og hækkuðu um 500 m.kr. eða 5,7% frá fyrra ári.
- Vaxtamunur var 4,2% á fyrstu níu mánuðum ársins 2026 samanborið við 4,1% á fyrstu níu mánuðum ársins 2025.
- Hreinar þóknanatekjur námu 4.282 milljónum króna, samanborið við 5.026 m.kr. á sama tímabili árið 2025 og lækkuðu um 744 m.kr. eða 14,8%.
- Aðrar rekstrartekjur námu 828 milljónum króna, samanborið við 581 m.kr. á sama tímabili árið 2025 og hækkuðu um 247 m.kr.
- Rekstrarkostnaður nam 8.767 milljónum króna, samanborið við 8.811 milljónir króna á sama tímabili árið 2025 og lækkaði um 44 m.kr. eða 0,5%.
- Arðsemi efnislegs eigin fjár (RoTE) fyrir skatta af áframhaldandi starfsemi nam 16,4% á fyrstu níu mánuðum ársins 2026, samanborið við 14,9% á sama tímabili árið 2025.
- Hagnaður á hlut af áframhaldandi starfsemi nam 0,84 kr., samanborið við 0,68 kr. á sama tímabili árið 2025.
Ármann Þorvaldsson, forstjóri Kviku:
„Það er mjög ánægjulegt að sjá að bankinn er kominn á þann stað að reksturinn er að skila arðsemi í takt við markmið. Arðsemi þriðja fjórðungs, 18,9%, var sú hæsta síðan á þriðja fjórðungi árið 2024 og kemur í kjölfar umfangsmikilla útgreiðslna til hluthafa í formi arðs og endurkaupa. Samhliða þeim hefur verið kröftugur vöxtur í útlánum og innlánum þrátt fyrir að kostnaður sé nánast óbreyttur milli ára.
Þessi árangur hefur náðst þrátt fyrir erfitt ytra umhverfi, viðvarandi verðbólgu, háa vexti og mikinn samdrátt í veltu á hlutabréfamarkaði, sem hefur haft verulega neikvæð áhrif á þóknanamyndun bankans.
Stór skref hafa verið stigin í fjármögnun bankans að undanförnu. Í kjölfar vel heppnaðs EUR útboðs í sumar hafa óhagstæðar lántökur í Bretlandi verið greiddar upp og í mánuðinum verður greiddur upp dýr skuldabréfaflokkur, sem gefinn var út á Norðurlöndum. Þá var ráðist í fyrstu útgáfu sértryggðra skuldabréfa Kviku, sem tókst mjög vel og gerir Auði nú kleift að bjóða upp á óverðtryggð fastvaxtalán til íbúðakaupa í fyrsta sinn.
Væntingar okkar eru að vaxtatekjur haldi áfram að aukast jafnt og þétt með bættum fjármögnunarkjörum og áframhaldandi stækkun lánabóka á Íslandi og í Bretlandi. Við gerum ekki ráð fyrir samsvarandi vexti í kostnaði, sem á að skila sér í áframhaldandi bættri arðsemi bankans á næstu misserum.
Fyrir Alþingi liggur þó frumvarp um hækkun bankaskatts sem auka myndi enn frekar þær sértæku álögur sem þegar eru lagðar á fjármálafyrirtæki. Kvika hefur komið á framfæri við viðskipta- og efnahagsnefnd tillögum um breytingar á frumvarpinu sem miða að því að draga úr áhrifum skattsins á minni fjármálafyrirtæki, annaðhvort með því að skatturinn nái eingöngu til kerfislega mikilvægra banka eða með því að skattleysismörk verði hækkuð umtalsvert.
Því verður ekki trúað að óreyndu að hækkun skattsins, sem við setningu átti aldrei að ná til annarra en kerfislega mikilvægra banka og réttlætt hefur verið á grundvelli tímabundins hagnaðar stóru bankanna vegna mikillar verðbólgu, verði látin ná með sama hætti til lítils banka, sem hefur ekkert hagnast á hárri verðbólgu.
Kvika býður neytendum sparnaðarinnlán og íbúðalán hjá Auði með lágmarks vaxtamun og hefur því takmarkað svigrúm til að mæta aukinni skattlagningu án þess að hún hafi áhrif á kjör viðskiptavina. Slík skattlagning dregur jafnframt úr því samkeppnislega aðhaldi sem Kvika veitir stóru bönkunum og getur því haft mun víðtækari neikvæð áhrif á neytendur en aðeins viðskiptavini Kviku.
Á fjórðungnum var tilkynnt um ráðningu nýs forstjóra, Jóns Birgis Jónssonar, sem mun hefja störf í byrjun desember. Ég óska Jóni velfarnaðar í starfi á sama tíma og ég kveð frábæran vinnustað með miklum söknuði.”
Kynningarfundur og fjárfestakynning
Kynningarfundur fyrir hluthafa og markaðsaðila verður haldinn fimmtudaginn 5. nóvember kl. 08:30 í höfuðstöðvum bankans á 9. hæð í Katrínartúni 2, 105 Reykjavík. Þar munu Ármann Þorvaldsson, forstjóri Kviku, og Eiríkur Magnús Jensson, fjármálastjóri, fara yfir uppgjör félagsins auk þess sem Halldór Snæland, framkvæmdastjóri viðskiptabankasviðs, mun veita innsýn í starfsemi sviðsins og helstu verkefni. Fundinum verður jafnframt streymt HÉR
Hægt er að senda tölvupóst með spurningum fyrir fund eða á meðan honum stendur á netfangið: fjarfestatengsl@kvika.is