01. nóvember 2024
Nýjum fyrirtækjareikningum Auðar, sem bjóða hæstu vexti á óbundnum innlánsreikningum óháð upphæð, hefur verið vel tekið. Eftir aðeins fjórar vikur frá opnun hafa yfir 400 fyrirtæki stofnað nýja reikninga og er staða innlána komin yfir 2 milljarða króna.
Auður, fjármálaþjónusta Kviku fyrir sparnaðarreikninga, kynnti fyrir um mánuði nýja þjónustu, fyrirtækjareikninga sem bera 8% vexti, óháð innlánsupphæð, á óbundnum og óverðtryggðum sparnaðarreikningum, sem eru hæstu vextir á sambærilegum reikningum sem eru í boði á markaðnum í dag fyrir fyrirtæki.
„Þetta hefur farið mjög vel af stað og fjöldi viðskiptavina á fyrstu vikunum hefur farið fram úr okkar væntingum,“ segir Halldór Snæland framkvæmdastjóri viðskiptabankasviðs hjá Kviku.
„Við fengum strax í upphafi frábærar viðtökur frá fyrirtækjum bæði frá þeim sem þegar voru í viðskiptum við Kviku en ekki síður frá nýjum fyrirtækjum. Fjöldi nýrra fyrirtækja hefur bæst í viðskiptavinahóp okkar og opnaði reikninga strax á fyrstu dögum. Við fundum þannig fljótt að við vorum greinilega að svara eftirspurn sem var til staðar frá fyrirtækjum í landinu, ekki síst litlum og meðalstórum fyrirtækjum. Nú þegar mánuður er liðinn frá opnun hafa yfir 400 fyrirtæki opnað reikninga hjá Auði og staða innlána er orðin rúmir 2 milljarðar króna og fer hækkandi með hverjum degi.“
Hæstu vextir á fyrirtækjareikningum: 8% á óbundnum innlánsreikningum, óháð innlánsupphæð
Auður er fjármálaþjónusta í eigu Kviku sem hefur frá upphafi boðið einstaklingum uppá einfalda sparnaðarreikninga á netinu með hæstu mögulegu vöxtum án binditíma. Viðskiptavinir Auðar meðal einstaklinga eru nú yfir 50.000 og staða innlána rauf 100 milljarða múrinn á fimm ára afmæli Auðar síðastliðið vor. Auður veitir þjónustu einungis á netinu en með því er kostnaði haldið í lágmarki og þannig skapast svigrúm til að bjóða viðskiptavinum upp á betri innlánskjör.
Á fimm ára afmælisári Auðar var ákveðið að útvíkka þjónustuna til fyrirtækja og bjóða þeim einnig betri kjör á sparnaðarreikningum en aðrir bjóða. Nýir fyrirtækjareikningar Auðar fóru í loftið þann 25. september sl. með 8% vexti, óháð innlánsupphæð, á óbundnum og óverðtryggðum sparnaðarreikningum, sem eru hæstu vextir á sambærilegum reikningum sem eru í boði á markaðnum í dag fyrir fyrirtæki. Reikningar og vaxtakjör Auðar standa öllum fyrirtækjum til boða óháð því hvort þau eru í öðrum viðskiptum við Kviku. Á einfaldan hátt geta forráðamenn stofnað nýjan reikning fyrir sína starfsemi á vef Auðar. Reikningarnir bera hvorki stofngjald né færslugjöld.