Fjárfestingarbanki
Kvika veitir fjölbreytta þjónustu á sviði lánveitinga, verðbréfa- og gjaldeyrisviðskipta og fyrirtækjaráðgjafar
Alhliðaþjónusta á sviði verðbréfa- og gjaldeyrismiðlunar
Kvika hefur skapað sér sterka stöðu á gjaldeyrismarkaði og er eini aðilinn sem býður gjaldeyrisviðskipti á nýjum Gjaldeyrismarkaði Keldunnar.
Gjaldeyrismarkaður Keldunnar
Gjaldeyrismarkaður Keldunnar er umbreyting á hefðbundnum gjaldeyrismarkaði
Fagleg ráðgjöf
Hjá markaðsviðskiptum Kviku geta viðskiptavinir einnig átt viðskipti með hlutabréf og skuldabréf á öllum helstu mörkuðum heims. Sérfræðingar Kviku bjóða upp á faglega ráðgjöf og persónulega þjónustu sem er sérsniðin að þörfum fagfjárfesta.
Gjaldeyrisviðskipti
Kvika býður upp á alhliða þjónustu í gjaldeyrisviðskiptum. Annars vegar hefðbundin stundarviðskipti með gjaldeyri og hins vegar varnir með framvirkum samningum þar sem viðskiptavinir geta tryggt gengi fram í tímann vegna vöru- og þjónustuviðskipta.
Sérsniðin og skilvirk markaðsviðskipti
Hafa má samband við markaðsviðskipti Kviku banka með því að senda tölvupóst á kvika@kvika.is eða smella á hnappinn hér að neðan.
Sérfræðiráðgjöf í fjárfestingum og fjármögnun fyrirtækja
Fyrirtækjaráðgjöf veitir ýmiss konar ráðgjöf tengda fjárfestingum og fjármögnun. Áhersla er lögð á kaup og sölu fyrirtækja og skráningu verðbréfa.
Kaup, sala og samrunar
Kvika veitir ráðgjöf við kaup, sölu og samruna fyrirtækja. Aðkoma fyrirtækjaráðgjafarinnar er gjarnan verkstjórn á slíku ferli, greining tækifæra, virðismat, greining virðisaukandi þátta, ráðgjöf um aðferðafræði, umsjón með samningaviðræðum og lúkning viðskipta. Aðkoma Kviku felur í sér sjálfstæða ráðgjöf með það að markmiði að tryggja hagsmuni viðskiptavina sinna.
Fjármögnun fyrirtækja með hlutabréfa- eða skuldabréfaútboðum
Mörg íslensk fyrirtæki og stofnanir hafa í gegnum tíðina nýtt sér þá fjármögnunarleið að gefa út verðbréf til að fjármagna rekstur sinn, fjárfestingar eða uppgreiðslu lána (endurfjármögnun). Lífeyrissjóðir og verðbréfasjóðir eru öflugir og mikilvægir fjárfestar sem geta fjármagnað starfsemi og vöxt fyrirtækja. Fyrirtækjaráðgjöf bankans aðstoðar fyrirtæki við endurfjármögnun lána hjá fjármálastofnunum með þátttöku við gerð útboðsgagna og greiningar og ráðgjöf
Nýskráningar og afskráningar hluta- og skuldabréfa
Til að auðvelda viðskipti með verðbréf eru þau skráð í Kauphöll Íslands. Ekki er nauðsynlegt að hafa hlutabréf félagsins skráð í Kauphöllinni til að óska eftir skráningu á skuldabréfaflokkum. Með skráningu skuldabréfaflokks verða skuldabréfin auðseljanlegri í frumútboði. Skráningarferli í Kauphöll Íslands er vandasamt verk sem krefst yfirsýnar og sérþekkingar. Fyrirtækjaráðgjöf Kviku býr yfir yfirgripsmikilli reynslu af umsjón með nýskráningum og afskráningum hluta- og skuldabréfa.
Fáðu faglega ráðgjöf sérfræðinga fyrir þitt fyrirtæki hjá Kviku banka
Hafðu samband við fyrirtækjaráðgjöf Kviku banka með því að senda tölvupóst á corpfin@kvika.is eða smella á hnappinn hér að neðan.
Sérhæfð útlán
Kvika veitir sérhæfð útlán til fyrirtækja, stofnana og fjárfesta til fjármögnunar á t.d. fasteignum, fasteignaþróun, verðbréfaviðskiptum og öðrum fjárfestingum. Einnig nýtir sviðið innviði bankans til þess að miðla lánum til annarra stofnanafjárfesta.
Hafðu samband við lánasvið Kviku með því að senda tölvupóst á netfangið lanasvid@kvika.is.