Árleg umsýsluþóknun fyrir Séreignasparnað 5 er 0,80%
Ávöxtunarleiðin fjárfestir í innlendum og erlendum hlutabréfum, skuldabréfum og verðbréfasjóðum með þeim takmörkunum sem 36. gr. a. laga nr. 129/1997 kveða á um. Jafnframt er möguleiki á að fjárfesta í íbúðahúsnæði til útleigu í samræmi við 11. tölul. 36. gr. laga nr. 129/1997
Leiðin hefur heimild til að fjárfesta í hlutabréfum fyrirtækja eða hlutabréfasjóðum ásamt hlutdeildarskírteinum verðbréfasjóða eða fjárfestingasjóða að hámarki 70%
Ávöxtunarleiðin hefur jafnframt heimild til að fjárfesta í ríkisskuldabréfum, ríkisvíxlum, íbúðarbréfum og öðrum skuldabréfum í íslenskum krónum með ábyrgð íslenska ríkisins að hámarki 80%
Leiðin hefur jafnframt heimild til að fjárfesta í peningamarkaðsskjölum og innlánum fjármálafyrirtækja að hámarki 50%