Óendurskoðað stjórnendauppgjör 2022
Kvika Securities lauk við yfirtöku á Ortus í febrúar 2022 og hafa ársreikningar Ortus myndað hluta af ársreikningi samstæðu Kviku banka hf. frá árinu 2022. Eftir árið 2022 hefur verið gerður endurskoðaður ársreikningur móðurfélags Ortus en ekki endurskoðaður ársreikningur fyrir samstæðu Ortus líkt og árin á undan. Útbúið hefur verið óendurskoðað stjórnendauppgjör fyrir samstæðu Ortus vegna ársins 2022. Frá og með árinu 2023 er gerður samstæðureikningur fyrir bresku starfsemina, Kviku Securities og Ortus.