Áreiðanleikakönnun einstaklinga

Mikilvægur liður í starfsemi Kviku banka er að þekkja viðskiptavini sína, markmið þeirra og aðstæður. Með aukinni þekkingu er auðveldara að uppfylla þarfir viðskiptavina og vernda gegn hugsanlegum auðkennisþjófnaði eða annarri misnotkun á þjónustu Kviku banka.

Kviku banka hf. er skylt, á grundvelli laga nr. 140/2018, að búa yfir tilteknum upplýsingum um viðskiptavini sína og er óheimilt að framkvæma viðskipti eða eiga í viðskiptasambandi nema þær liggi fyrir. Þessar upplýsingar skipta máli í baráttunni gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka og eru því stór þáttur í samfélagsábyrgð bankans.

Meðal upplýsinga sem við þurfum eru:

  • Nafn og kennitala
  • Heimilisfang
  • Uppruni fjármuna
  • Upplýsingar sem tengjast eðli og tilgangi viðskiptasambands